ATH breytti simanumerinu adeins, thad er 485 ekki 458..
allavega segir Hordur thad
Já búið að vera þrumuveður í allt kvöld!
Eg búinn að vera tossast eitthvað síðustu klukkustundirnar, þarf að
fara læra eftir smá. Þarf að klára að læra fyrir efnafræðiprófið á
morgun og leggja lokahönd á einhverja misheppnaða
enskuritgerð...
Er búinn að reyna átta mig á myspace, en það gengur illa. Enn sem
komið er á ég 2 vini... systir mín og Ara Lár
www.myspace.com/haraldurhar
ef þið eigið svona þá megið ÞIÐ adda mér sem vin, því ég kann ekki
að gera svoleiðis ennþá. Áttaði mig samt áðan á því hvernig maður
setur lag inn á síðuna

frumraunin var Bigger Stronger með
Coldplay, en líklegast hefur það eitthvað breyst þegar þú kíkjir
þar inn.
Fékk mér síma, heimasíma sko í fyrrdag.
ÞEGAR þú ætlar að hringja í mig, þá er númerið:
252-485-5577 og síðan extension
6033... þá hringiru inn á mitt herbergi

Gætir
þurft að hringja nokkrum sinnum áður en ég næ símanum, því ég held
að kerfið láti hringja út eftir aðeins 2 hringingar. þannig að þó
ég svari ekki fyrstu 1-2 þá endilega hringdu í þriðja, fjórða,
fimmta sinn...
Sum ykkar afsaka sig með fjárhagslegum rökum.. þ.e. að of dýrt sé
að hringja hingað, en ég hef lausn á því

Þið bara kaupið míkrafón í tölvuna ykkar og hringið í gegnum
internetið með því að downloada forriti sem heitir VoipBuster.
Finnið það bara með því að googla nafnið
Restin af ykkur (já því ég fæ aldrei símtal) afsakar sig með því að
ég hringi aldrei í ykkur og hví ættuð þið þá að hringja í mig...
Því svara ég svona, með voipbuster forritinu geturu bara hringt í
heimasíma. Ég kann ekki við að hringja í heimasíma vina minna,
svona almennt.
ÉG hringdi samt einu sinni eða tvisvar í Óskar held ég, en ég er
svona að reyna fyrirbyggja slæma reynslu af heimasímum. Slæm
reynsla væri t.d. ef ég myndi hringja heim til Hödda og mamma hans
myndi svara ---

hún á það til að koma manni í vandræðalegar
aðstöður

hehe, höddi, óskar, atli.. þið vitið hvað ég meina
hehe

allt í góðu samt...
Já held að inn í bandaríkin sé númerið 1 ... þannig að þið þyrftuð
að setja 001 í byrjunina held ég.
Hver horfði á Mighty Mouse á sínum tíma?
Það var uppáhaldið okkar systkinanna

haha, váá hvað við horfðum
mikið á það. Áttum/eigum einhverjar 7 spólur af því. Þetta kom bara
svona upp í hugann um daginn.. voru nebbla nett skemmtilegir þættir
Sorgardagur fimmtudaginn var. The O.C. var sýnt í síðasta sinn.
Góður þáttur... dáldið sorglegur en ýkt góður. Ég dreif mig nú bara
eftir þáttinn og downloadaði allri fyrstu seríunni

er því
byrjaður á byrjuninni ... 1þáttur búinn .. 4.seríur eftir

hehe.
Spring Break verður eftir næstu viku

held ég fari í strandhús
sem Sam kærasta Luke á. Það er svona 3 tíma í burtu á stað sem
heitir Emerald Isle. (google earth for the win)
En hérna já... ætla fara rífa í mig Hot Pockets og smá
efnafræði í eftirrétt...
blee
Haraldur.